Daði og Hulda í Svíþjóð

Sími: 0046-8-7673755 - Heimilisfang: Siggebovägen 3, 18133 Lidingö

söndag, december 12, 2004

Lekur gosflaskan ef maður tekur plastdraslið úr tappanum?

Þetta fannst mér skyndilega mjög áhugavert yfir kvöldmatnum svo ég ákvað að komast að því. Fyrst reif ég plastdótið úr tappanum, setti tappan síðan aftur á flöskuna og skrúfaði fastan. Því næst sneri ég flöskunni á hvolf og ekkert gerðist. Humm...kannski það taki bara smá tíma að byrja að leka...og þess vegna skellti ég hálffullri flöskunni, á hlið, efst upp í ísskápinn og lokaði. Tveimur tímum seinna opnaði ég aftur skápinn og viti menn - það tók bara smá tíma að byrja að leka.

Nú er ísskápurinn okkar allur klístraður og ég er búin að læra að það er ástæða fyrir plastdrasli í töppum.